Svíþjóðarferð

Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.

Niðurteljarar





























































This page is powered by Blogger. Isn't yours?
föstudagur, janúar 30, 2004
 
Nuna i hadeginu var verid ad raeda mannanofn thvi ein samstarfskona min er ad fara eiga e. mánuð (skráð 8. mars, Ósk!). Hún og kærastinn hennar eru sko ekki sammála um hvaða nöfn eru falleg. Hún vill t.d. að hann heiti Sebastian eða Oscar ef það er strákur en hann vill Vincent. Henni finnst það of langt, og viðurkennir ekki að það sé styttra en Sebastian. Eníveis, þá vorum við að reyna að hjálpa til og einn Post-Doc-inn sem er frá Íran og heitir Said stakk auðvita upp á Said. Ef hún vildi hafa nafnið norrænna gæti hún bættu -ur fyrir aftan. Ég sagði þeim auðvita að Saidur þýddi Sætur ef maður er strákur á Íslensku og þeim fannst það ægilega fyndið og heppilegt. Enn fyndnara fannst þeim að nafn post Docsins þýddi sæt.

Man ekki hvort ég var búin að fræða ykkur um að ég væri kannski að fara á ráðstefnu en það er allavegna klappað og klárt, professorinn búin að samþykja og borga og allt. Það fyndna við þetta er að Palli sem var á þriðja ári í lífefnafræði í háskólanum þegar ég var á fyrsta ári er líka að fara á þessa ráðstefnu. Jei. Ég ætla sko að tala hátt íslensku við hann og gera grín að svíunum þegar þeir skilja ekki neitt. Hahahahaha! Hér er linkur á síðuna hans Palla.


miðvikudagur, janúar 28, 2004
 
Svíarnir eru soldið skondnir. Þeir fylgjast oft með því sem hinir borða í hádeginu og koma stundum með einhver komment: "vá hvað þetta lítur vel út, bjóstu þetta til sjálf", "Guð hvað þetta lyktar vel, bjóstu þetta til sjálf" eða eitthvað í þá áttina.
Í gær og í dag spurði fólk hins vegar hvort að ég væri að borða hrísgrjónagraut. Ég játti því að sjálfsögðu, enda stolt af því að kunna að búa til hrísgrjónagraut. "Og eru þetta venjuleg hrísgrjón sem þú notar". Ég var soldið skeptísk á að ég heyrði rétt. Venjuleg hrísgrjón. Hvað annað notar maður í hrísgrjónagraut. Ég geri bara eins og mamma, eða ég held það allavega, ég hef líklega aldrei spurt hana hvaða grjón hún noti.
Ég spurði þá náttúrulega, í hálfgerðu djóki, hvort þau notuðu sérstök hrísgrjón. Já, þá nota Svíarnir ekki svona ílöng hrísgrjón heldur meira svona kúlulaga sem heita víst "risgrötsgryn" (hrísgrautsgrjón). Pælið í því, sérstök grjón fyrir hrísgrjónagrautinn!! Ég bar bara fyrir mig að Íslendingar væru svo fátækir að þeir hefðu ekki efni á sérstökum grjónum og yrðu að nota þessi venjulegu. Og þá vildu Svíarnir halda því fram að þessi hrísgrautsgrjón væru nú ódýrari. Puuuh.
Það er greinilegt að ég verð að kanna málið, kannski eru þessu grjón ódýrari og kannski betri, hummm.
En mamma, hvernig grjón notar þú eiginlega?


 
Það er ekkert að marka það sem hann kalli segir. Fyrir jól var örugglega í þriðja skipti sem ég fór að grenja af því að Kalli var hættur að blogga einu sinni enn. Og nú er hann byrjaður aftur. Hrmph. Veit ekki hvað mér á að finnast. Þegar hann nennir að blogga er hann eiginlega besti bloggarinn sem ég les en ég veit ekki hvort ég á að treysta því að þetta endist. Ætli ég verði ekki bara að lesa það sem til mín er hent og vera ánægð með það.

Annars fórum við í pool með Hrönn í gær. Við Hrönn ætlum að hætta að spila við Emelíu því hún er svo frek og leyfir okkur aldrei að gera. Svo er ég að hugsa um að taka jólagjöfina til baka. Ég er ekki tapsár.


mánudagur, janúar 26, 2004
 
Við erum búnar að fá rafmagnsreikninginn okkar, fyrir eitt og hálft ár!!! Já, loksins kom hann. Við fengum hótum fyrir um þremur mánuðum (eins og við sögðum skíthræddar frá) um að lokað yrði fyrir rafmagnið hjá okkur en Auður kippti því í lag með einu símtali og átti í kjölfarið að koma maður til að lesa af hjá okkur. Við höfum aldrei orðið varar við þennan mann en það hefur ekki hindrað Svíana í að senda reikning. Ég vildi ekki opna bréfið þegar það barst því Svíarnir kvarta soldið yfir of háu rafmagnsverði en Auður var kjörkuð. Ég varð hissa þegar ég sá töluna því reikningurinn var einungis upp á 17 þúsund íslenskar. Það væri náttúrulega slatta mikið ef það væri fyrir einn mánuð en þetta er fyrir 18 mánuði, þ.e. síðan að við komum (í ágúst 2002) og fram í miðjan febrúar sem gerir ekki nema tæpan þúsund kall á mánuði. Við erum að sjálfsögðu soldið efins um að þetta sé allt sem við eigum að borga því ef Svíarnir eru að kvarta yfir þessum aurum þá eru þeir nú meiru nöldurseggirnir. Heima á Íslandinu góða, þar sem maður heldur því fram að rafmagnið sé ókeypis, vorum við að borga rúmlega 1200 kall á mánuði. Huuuuh.