Svíþjóðarferð |
|
|
Auður og Emelía leggja haf og land undir fót og flytja til lands öryggisins.
Ýmislegt
Linkar
|
þriðjudagur, janúar 31, 2006
Eins og Arna benti réttilega á í tjáningarkerfinu í gær þá er bolludagurinn 27. feb en ekki á mánudaginn næsta eins og ég hélt fram. Ég kíkti reyndar á eitthvert dagatal á netinu en ég tók greinlega ekki betur eftir en svo að það dagatal var fyrir 2005. Ég get því æft mig í 27 daga í viðbót (ef ég verð ekki upptekin við eitthvað annað) og miðað við tölfræðina þá ættu bollurnar að takast allavega þrisvar sinnum; ekki slæmt. Annars er seinasti dagurinn í vinnunni og mun ég m.a. eyða honum á tveggja tíma fundi sem öll deildin mín verður á. Ég elska fundi (NOT!!!) og á þessum er farið í gegnum fjármagn deildarinnar og fleira áhugavert. Það ætti líklega að lyftast á manni brúnin við að hver og einn fær heila pizzu og kók í boði deildarinnar. Þessar pizzur eru hins vegar langt frá því að vera góðar og seinustu ár hefur kókið ekki verið Coca Cola heldur eitthvert sænskt Kola. Svíar eru með margar eigin vörutegundir sem þeir meta mikils, en að taka þetta Kola fram yfir alvöru kók er eins og að Íslendingar myndu hylla Bónus Kóla sem allir heilvita menn sjá að er alveg út í bláinn. En svo ég breyti yfir í sænskan hugsunarhátt þá á maður að vera þakklátur fyrir það sem maður fær (en samt hefur maður rétt til að kvarta og kvarta og kvarta ef maður fær ekki nákvæmlega jafn mikið og næsti maður!). mánudagur, janúar 30, 2006
Hérna getið þið séð línuritið yfir þær 5 stærðarmælingar sem gerðar hafa verið á Gússí (eða leginu öllu heldur). Af því að bolludagurinn nálgast (er eftir nákvæmlega viku) og ég elska vatnsdeigsbollur þá datt mér í hug að þjófstarta aðeins. Ég byrjaði því mjög bjartsýn í gær að gera bollur því þær tókust svo fullkomlega í fyrra. Ég hugsaði lítið til þess þegar ég reyndi að baka vatnsdegisbollur 7 sinnum fyrir 3 árum en fékk einungis út vatnsdegisklatta í hvert einasta skipti. Mér til smá furðu (því ég var svo bjartsýn) og örlítilla vonbrigða fékk ég út klatta í þetta skiptið líka. Staðan er því 8:1 fyrir klöttum gegn bollum!!! Það er næsta víst (eins og Bjarni Fel myndi orða það) að ég mun prófa aftur næsta sunnudag því ég gefst ekki upp. sunnudagur, janúar 29, 2006
Á okkar heimili hafa allir það glymrandi fínt. Seinustu vikur hafa verið soldið kaldar í Stokkhólmi enda janúar og febrúar köldustu mánuðirnir. Ég held að við höfum ekki gert neitt af okkur undanfarið sem hefur einmitt verið ástæða þess að við höfum ekki bloggað. Í gær drifum við okkur þó á Pizza Hut og í bíó. Sáum "Fun with Dick and Jane" með Jim Carrey og var hún alveg þokkalega fyndin á köflum, þið ættuð því ekki að sjá eftir þeim peningum. Það eru bara 2 dagar í að ég verði heimavinnandi húsmóðir. Á bara eftir að vinna morgundaginn og þriðjudaginn og er svo bara komin með tuskuna í hendina. Ég verð að viðurkenna að ég hlakka nokkuð mikið til; ekki veitir af að þrífa aðeins heimilið og þvo öll fötin af Gússí. Þessi verkefni gætu enst mér í nokkra daga og ég hef ekki minnstu áhyggjur af að mér eigi eftir að leiðast. Hérna er mynd af bumbunni 36 vikna. |